föstudagur, 7. nóvember 2014

Dafna

Að hausti raka ég laufinn í garðinum í hrúgu og brenni. Þegar vorar mun ég raka laufinn í skóginum í mannveru og brenna. Hún mun lifna við og bera mig á háhest norður í ríki Pólstjörnunnar, sem er krýnd með kórónu sem ég óf úr hári þínu í vetur og brenndi ásamt afskornum blómum sem fórn til þess afls sem trúir því að ekkert muni fara úrskeiðis, að tréð muni halda áfram að vaxa innra með þér. Ég fer inn, bý mér til kaffi, og drekk dökkt seyðið, og snusa eftir ilm þínum sem rennur í loftfarvegi milli veggja sem ég hlóð úr mold og munnvatni. Allt ertu, tré.

föstudagur, 2. maí 2014

Munnlegt próf í virkri þjóðfélagsþátttöku

1)

ímyndaðuðér fíl
hættað ímyndaðér fíl

ímyndaðuðér reikistjörnu án fíla og ekki hugsum fíl
sem er auðvelt flestar reikistjörnur eru fíllausar

ímyndaðuðér fjall þar sem fíllinn ættað vera
ánðessað hugsum fíl

ímyndaðuðér fjallgarð sem er eins og fílahjörð
ánðessað sjá fíla fyriðér

ímyndaðuðér fjallgarð á reikistjörnu þar sem engir fílar eru
ánðessað hugsum fíl
þvíðú býrð í borg í dal í fjallgarði á reikistjörnu
þar sem engir fílar eru ekki hugsum fíl


2)

vertu virði
vertu milljarðar
vertu fjall af seðlum
gakk mót rokinu
lát milljarða fjúka
lát pappírinn dansa í kviðunum
mundu þegar þú stendur eftir
þú ert ekki mannvera
þér var þrýst upp úr landinu
þú ert landslag
ver fjall


3)

gakktá vegg
er áferð sársaukans ekki fögur
gakktá vegg
handan sortans býr hamingja
gakktá vegg
efðú heldur áfram bifastann loks
gakktá vegg
ef þúsundir gangí mót veggnum fellurann
gakktá vegg
einosér er hver blóðfruma lítilsverð
gakktá vegg
fossinn er aflfagur ekki dropinn
gakkt!gakkt!gakk


4)

búðu til sprengju
sprengdu

það skapast ekki nýr heimur
búðu til stærri sprengju
sprengdu

ef ekki skapast nýr heimur búðu til stærri sprengju
sprengdu þar til sprengjan er nógu stór til að skapa nýjan heim
alheim sem þú getur borið í sprengdu fanginu
tak hann í fang þér hald við kvið þér
strjúk alheiminn meðan hann stækkar
einn dag mun sá nýi fylla þann gamla
þú og allt sem þú kannt utanað
mun einungis verða til sem flattar myndir
á útjarði alheims sem þú sprengir til lífs

mánudagur, 28. apríl 2014

Klámferill við heimsenda

Vinur minn Micah sem ég hef ekki hitt eða heyrt í vel á áratug
sagði mér eitt sinn að hann hefði verið að horfa á klámmynd frá áttunda áratugnum
það var eitt sinn í tísku að finnast klámmyndir frá áttunda áratugnum bestu klámmyndirnar
og í einni dramatískri senu sem gerist á strætum stórborgar gekk framhjá maður með hund í ól
Micah hugsaði með sér: „Þessi hundur hlýtur að vera dauður núna“
síðan hugsaði hann: „Eigandi hans gæti verið dáinn líka“
þið verðið að skilja að þessar hugsanir fóru allar fram á öðru tungumáli en íslensku
en Micah er svo vandur að virðingu sinni að óhugsandi er annað en að hann myndi nota
dauður fyrir dýr
dáinn fyrir mann
þegar næsta klámsena hófst hugsaði hann: „Þetta nakta fólk gæti verið dáið öll átta dáin“
hann hefur aldrei getað horft á klámmynd síðan en í siðvandari kvikmyndum hrjáir þetta hann ekki
þar er gervið vandaðra og holdið hulið og þar af leiðandi tilvist mannvera ósýnileg utan rammans
dauðinn dáinn er ekki ríkjandi ástand dauður fyrir dýr dáið fyrir fólk heldur skáldskapur
eins og í æsku manns þegar allt utan þess sem maður skynjar með vitunum er skáldskapur
fortíð framtíð heimurinn utan hrings skilningarvitanna orsakir afleiðingar samfélagið
alheimurinn bara hugmynd stjörnur og stjörnuþokur punktar í næturmyrkrinu
í upphafi var einn punktur og ég veit ekki hvernig allt endar þá verð ég löngu dauður
dauður fyrir dýr ég er dýr og á dýr fyrir vini hví skyldi ég borða vini mína
dýr éta
fólk borðar
vini mína sem ég hef ekki hitt eða heyrt í vel á annan áratug ég var í sveit þrettán ára
hvers vegna að láta dýr gjalda óforsjálni minnar ég rak kýr og þær treystu mér og þekktu mig
löngu eftir kýrdaga mína var ég vandur að virðingu minni en svo ungur að allt var skáldskapur
ég og kærasta mín síðar eiginkona mín síðar mín fyrrverandi og nú eiginkona stærðfræðings
en í stærðfræði deyr ekkert bæði dýr og manneskjur deyja en eilífðin er stærðfræðihugtak
við áttum vinkonu jafn unga okkur sem dreymdi um að taka klámmyndir heima hjá sér
hún bað okkur um að koma heim til sín ekki til að taka kvikmynd bara ljósmyndir
meðan ég og kærasta mín myndum elskast þó að í þessu samhengi sé kannski betra að segja ríða
ríða fyrir dýr
elskast fyrir fólk
í tilvist sem er skáldskapur er eðlilegt að segja já og amen og spyrja hvenær við eigum að mæta
við áttum líka slatta af vinum sem gerðu klámmyndir í frístundum og bjuggu við góðan skáldskap
svo við lögðum af stað þegar svarað var: „Mætið strax engin ástæða að bíða“
úti var kalt það var rétt yfir tvítugu og vel undir frostmarki og klámferill okkar að hefjast
þegar við vorum í fimm mínútna fjarlægð frá því að ríða elskast á skjalfestan hátt
rann kærasta mín á svellbungu og rófubeinsbrotnaði og þar með lauk klámferli okkar
nú erum við fráskilin og tölumst ekki við en hún er gift með barn og ég í hamingjusömu sambandi
þannig að allt fór vel að lokum þó að öll dýr deyji og ég hafi ekki hitt eða heyrt í Micah vel á áratug
og ég veit ekki hvort hann hugsi enn um dauðann þegar hann hugsi um klám
eða hvort hann geri greinarmun á mannskaða eða dýrskaða
og hvort við hittumst áður en alheimurinn endar ef hann endar en allur skáldskapur endar

Fylgjendur