föstudagur, 5. október 2012
Ort í munn karlmanns
Ég heiti Karl og mér finnst mikilvægt að errið sé rúllað ekki kall eða fjall en ég veit ekki hvernig á að bera það fram, bara á einhvern einn hátt og mín fyrrverandi rúllaði errinu eins og hrossagaukur og hún nærðist á grautnum af dauðum flugum og margfætlum sem vall úr munni mér, meira magn en öll skorkvikindin sem dóu í sumar milli Lómagnúps, Reykjanesvita og Kröfluvirkjunnar. Hún sagði að vetrarfrostið færði sér frið.
fimmtudagur, 27. september 2012
Heiðin vísindi
Þegar sól rís að morgni og tungl er á himni þá bera máninn og mannshöfuð sama skugga.
Þegar plöntur spretta hringrétt þá vaknar heimurinn af svefni.
Þegar könguló situr án vefjar í lausu lofti þá er guðinn að birtast þér.
Þegar plöntur spretta hringrétt þá vaknar heimurinn af svefni.
Þegar könguló situr án vefjar í lausu lofti þá er guðinn að birtast þér.
föstudagur, 17. ágúst 2012
2012 sumar Reykjavík
grill borgarar pylsur kjöt grænmetis tómatar paprikur kartöflur kótilettur lamb lamb lamb
fótbolti bjór frisbí bjór körfubolti badminton hakkísakk fótbolti bjór aldrei myrkur sól sól sól
kaffi útivið appelsín te kók setið á palli á Austurvelli bjór við Hljómskálann hjá Jónasi Tómasi
ganga á fjall ekki Esjan jú Esjan nei Esjan Esjan Esjan samlokur í nesti hnetur hnetur hnetur
göngutúr hafið Öskjuhlíð ströndin Klambratún legið í grasinu lesandi kelandi bjór lamb lamb lamb
keyrt með opna glugga sól sól sól Hljómskálinn Austurvöllur fótbolti hakkísakk hafið hafið hafið
sem krakki spilaði ég fótbolta sem unglingur drakk ég bjór núna fótbolti bjór fótbolti bjór lamb lamb
lamb bjór grænmetisborgarar grænmetispylsur tómatar paprikur aldrei myrkur lamb lamb lamb bjór
bjór bjór gin tónik sem krakki var ég í Val fótbolti á Klambratúni bjór sama hvaða bjór bjór
bjór sit út á palli á Austurvelli bakvið Hljómskálann lesandi kelandi hakkísakk kaffi appelsín te sól sól
keyrt eitthvað svo til baka opnir gluggar kaffihús útiborð bakgarður grill sól sól lamb lamb grill grill
horft á fótbolta rifist um fótbolta spilaður fótbolti fótbolti fótbolti bjór kaffi te appelsín gin tónik
sama hvaða tónlist sama hvaða áfengi sama hvaða fótbolti sama hvaða bók kelerí kaffi kaffi kaffi
tómatur paprika kokteilsósa grænmetisborgari franskar franskar franskir krakkar í fótbolta
hver er uppáhalds fótboltamaðurinn þinn Zidane þinn Messi Klinsmann Pelé van Basten aldrei myrkur
rifsber fyrst súr svo sæt veðurfréttir sól sól sól teknó blastar Laugavegur kaffi kaffi kaffi útiborð
ganga á fjall Móskarðshnúkur Keilir Móskarðshnúkur Keilir Keilir Keilir aldrei aftur myrkur sól sól sól
laugardagur, 7. apríl 2012
Ars Poetica for Dummies
í minningu Piso og
annarannarra hórurassa
bókstafir eru tól og stundum er
skemmtilegra að taka borvél í sundur heldur en að boreikkað
omeineikkað jájájájájájá éheyrikaððúertaseja
ljóð eigekkað meina heldur
vera en Vera er tímarit sem byrjaði að komút
löngul0n6ulöngeftirað Erkibaldur og Aðalsteinn voru ell núll enn
sex uuuuuuuuu daujurdaujur
ekki yrkja um dauðann þvíanner
gígantískur og handan alls sem er og án hans væri lífið
endalaust og yndislegt en rosalega rossalejamiggiða ódauðlegum
rottumflómkakkakakkakakkalakkalakkalökkumökkum heilu mekkirnir af
flugum og kónguköngukaunguköjngulómlómlóm vafnir inn í bilið
milli eins punkts og næsta púnts við hliðinjájájöjdda veitéhva
áekkimáekki
ekki fjalla um dauðann því
eins dauði er þrjú hundruð gráar ljósmyndir af auðum sveitabæ
í snævisvæfiþökktumdökkumökkum landslagsmálverkum máluðum
eftir ljósmynd tekinni eikkurntíman og annars sjónvarpaður dauði
er þrjú hundruð þúsundir turna hrynjandi inni í heilum
hellumþasseméoþúerum rígbundin á líkama en höfuðin frjáls
skynfærin fjögur eldur vatn loft og hatur hatur hatur
ekki yrkja um hatur því hatur
er ljóttljóttljótt og leiðir til tilfinninga og tilfinningar eru
vondar ekki sýna mér tilfinningar
sýndu mér hugsanir og pælingar
og minningar um pál og reku þegar ég var lítill og hlustaði á
kassettur af bídderðakasettureðaémanekkiskiftirengu kassetur af
æfintýrum um kóngson og tíkarson og kolbít þá voru páll og
reka altaf að hjálp æ djöflamergurégleymdieinuellíalltaf elli
kelli ha ha hún hafði Þór undir en ekki mig ekki mig
ekki semja um forgengileikann
hann er leiðinlegur og leiðinleg ljóð eru leiðinleg og enginn
kaupir bjór fyrir leiðinleg skáld og engin vill sofa hjá
leiðinlegu skáldi seminnirmijájásko eina
ástæðanfyrirþíasemjaljóðsemeikkaðskiptirmáli er að þá
vill kannski sexíosensetíft fólk næmtfólkmeðstinnarassa
skríðumlíkamanðinosleikja tólin þámunu aukakílóin
skoekkiskiptamáli neiþíhinnfullkomnilesandieðahlustandi lætur
slíkt ekki skipta sig máli
aldreiskrifafyrirframtíðina
þaðerekkertgamanaðríðaþegarþúrtlík
ojá líkingar erekkert
sérstaklega merkilegar jabbvelþóttéhafi notað líkingar þegarðú
gabbaðir mig tilðessatalum dauðann sem er ekkert gamanmál því
dauðinn safnast saman um tákn sem vísa til hans og þá þarf að
kveikja ljós og hjúfra sig að ódauðum líkömum og ekkilítaviðþí
skuggarnir erá hreyfingu
og ekkireynað stofna hreyfingu
þassorosa nítjándualdareikkað fyrirstríðeikkað
ogekkihaldað geðveiki sé dyggð
geðveiki girðir fólk afog útlimirðínir eru skornir ef þú
stígur innfyrir ohárðitt er brennt og augunðín límd opin
þartilðau þodna þurrkastuppoheillsandkassafsandisabnastsamaní
öjgntóttunumog
semdu fyrir augað mundað
bókstafir eru tákn og tákn eru myndir og ljóðlist er myndlist og
láttu A vera 4 og O ver4 0 0g G ver4 6 S 5 T 7 B 8 I 1 06 L 1 1'477u
b'0k574f1 1ey5457 upp '1 1'1nur 06 pún74 un5 ekker7 er ef71r nem4
s7r1k 06 d0ppur 06 4uðn 06 ekker7 eð4 e177hv4ð 5em 1æ7ur
næm4 f’01k1ð h4f4 fyr1r rétt1num 4ð r’1ð4ðér 06
es po k le í mk e di ip s t
l uu re ig aþ að ing un k e e k
yt pð k ym v er r rs uð þ í
ogalokum ljóðerutalningá
bókstöfum atkvæðum greinarmerkjum
liðumorðumlínumversumhlutumbókum fimmsjöfimm og
fimmsjöfimmsjösjö fimmliðaháttur sexliðaháttur
þrjárlínurerutersínafjórarlínurferskeytlaáttaoktava og fjórtán
sonneta og þá verðurað yrkjum ást því form er innihald eins og
ást er það að vera í nánd við veruna sem maður elskar
snertinglíkamaviðlíkamaímyrkrinu oþáerdauðinekkiskuggináveggnum
oþáerenginhættáðíað snappa
miðvikudagur, 21. mars 2012
NAPU
RTUM AÐLI TAST
rign
ingi nþyr last
hálf
fros inog hvít
ljós
astö jras kíma
spre
ngir götí húmð
íveð
rise mþes ueru
alla
rman nesk jurr
jafn
beyg ðarg ráar
ogho
rfna rinn ísig
íadl
anda gmun regn
sláh
úsþö kogv eggi
samk
væmt veðu rspá
rofa
rtil ámðn ætti
stjö
rnur eijð ahst
eins
oghe jðar býli
alhe
jmur iner auðn
þúst
iráh álen dinu
Nóttina sem guð átti að birtast mér í draumi vakti ég til morguns
Gapandi ernir hnita hringi í hugsun minni.
Reyttir arnpáfar skjögra valtir um huga minn.
Þú skreyttir augnbotna mína með fjöðrum
og lungu þín bæra þær til og frá.
Þú ert Ameríka, nei ég er Ameríka
og þú ert Cortés sofandi í rústunum.
Kom landkönnuður gakk kringum borg mína
og bannfærðu hana með sverðsegg.
Komið lúðrar og brjótið veggina.
Kom sól með elda dögunnar.
Kom brotnandi himinalda.
Kom miskunsama óminni.
Komið hrægammar.
Komdu værð.
Reyttir arnpáfar skjögra valtir um huga minn.
Þú skreyttir augnbotna mína með fjöðrum
og lungu þín bæra þær til og frá.
Þú ert Ameríka, nei ég er Ameríka
og þú ert Cortés sofandi í rústunum.
Kom landkönnuður gakk kringum borg mína
og bannfærðu hana með sverðsegg.
Komið lúðrar og brjótið veggina.
Kom sól með elda dögunnar.
Kom brotnandi himinalda.
Kom miskunsama óminni.
Komið hrægammar.
Komdu værð.
Mannverur séðar úr fjarlægð
ég sat í gluggasillunni
lesandi miðaldakrimma en líka
í augliti við götuna
sex metrum neðan við
þau gengu fram hjá
og í augnablik umbreyttust
þau í það með
snertingu fingra og húðar
fast á girðingu flökti
plastdrasl sem í útjaðri
sjónsviðs míns varð eldlogi
og skafrenningur að reyk
liljan hvín í rokinu
hvít í meyjarvissu heilans
dreymdi munkinn um Jerúsalem
eða var hann heimasáttur
lesandi miðaldakrimma en líka
í augliti við götuna
sex metrum neðan við
þau gengu fram hjá
og í augnablik umbreyttust
þau í það með
snertingu fingra og húðar
fast á girðingu flökti
plastdrasl sem í útjaðri
sjónsviðs míns varð eldlogi
og skafrenningur að reyk
liljan hvín í rokinu
hvít í meyjarvissu heilans
dreymdi munkinn um Jerúsalem
eða var hann heimasáttur
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)