föstudagur, 5. október 2012
Ort í munn karlmanns
Ég heiti Karl og mér finnst mikilvægt að errið sé rúllað ekki kall eða fjall en ég veit ekki hvernig á að bera það fram, bara á einhvern einn hátt og mín fyrrverandi rúllaði errinu eins og hrossagaukur og hún nærðist á grautnum af dauðum flugum og margfætlum sem vall úr munni mér, meira magn en öll skorkvikindin sem dóu í sumar milli Lómagnúps, Reykjanesvita og Kröfluvirkjunnar. Hún sagði að vetrarfrostið færði sér frið.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli