laugardagur, 5. febrúar 2011

Á bakinu

flatir í sama rúmi
ég og ljóðlistin
ég finn á sænginni hvernig hann stífnar
þegar ég kyssi hann
anda honum í lungun
boðleiðir skynfæranna riðlast
ég ligg á bakinu
ofan á mér er Aristóteles
með skurðarhnífinn reiddan
ég opna mig
blóm gras vatn sól himinn stjörnur
hestar sökkvandi í gljúpum þér

Engin ummæli:

Skrifa ummæli

Fylgjendur